Tuesday, December 09, 2008

JÓLAFRÍ!!!

Í dag er mikill gleðidagur. Ég vaknaði fyrir allar aldir til að fara með Fróða til Höllu og tók svo strætó í prófið. Það gekk bara vonum framar, ég náði allavega að skrifa helling og er alveg viss um að ég er búin að ná!!! Ég þakka nú bara Guði fyrir það og vá hvað það var frábært að taka próf í MF eins furðulegt og það hljómar. Við byrjuðum á því að prófdómarinn dró vers og las fyrir okkur og svo báðum við saman sem var besta byrjun á prófi sem ég hef nokkru sinni vitað. Ég dansaði svo útúr kennslustofunni (eða svona næstum) þrem korterum áður en ég átti að skila prófinu. Nú er ég komin í frí þangað til 12 janúar takk fyrir!!! Ég fór beint til Höllu eftir prófið og eftir að borða ís og leika við Sigrúnu fórum við í bíó á Body of Lies sem Leonardo DiCaprio og Russel Crowe. Við vissum EKKERT hverju við ættum að eiga von á en myndin var bara rosa góð. Líka mjög Pensum relevant þar sem hún gerist í hinum Múslimsku miðausturlöndum og fjallar um hryðjuverkastríð Bandaríkjamanna frá óvanalegu sjónarhorni.

Á morgun fer ég með Henriette í bókaforlagið að skúra, hún ætlar að kenna mér handtökin sem þýðir að ég verð eftirmaður hennar eftir áramót, sem er bara geggjað. Þá fæ ég ca 2500 - 3000 á mánuði og get leyft mér ýmislegt, eins og t.d. að fara í Hundafimina sem byrjar 30 jan. Á fimmtudaginn er ég svo mögulega að fara að skúra heima hjá Klöru og föstudeginum þar ég svo að taka til heima hjá mér þar sem nokkrar stelpur úr bekknum koma í heimsókn í fyrsta saumaklúbbsfundinn okkar og Halla getur vonandi verið með okkur.
Guð blessi ykkur og svo sjáumst við eftir viku á klakanum!!!!

4 comments:

Fjóla Dögg said...

Ég get ekki beðið, get ekki beðið, get ekki beðið, get ekki beðið, get ekki beðið, get ekki beðið, get ekki beðið.. eftir að þú komir heim :D. Ég er svo engan vegin að áta mig á því að ég er að flytja af íslandinu góða mjög súrialíst. Davíð er bara að p´roflesast á fullu og mér hund leiðist á meðan nema ef þa ðværi ekki fyrir hann Mola minn ;D.
En ég bið guð að blessa þig og get ekki beðið að hitta þig eftir viku :D.
Kv Fjóla og Moli

Anonymous said...

Það verður æði að fá þig heim :D
Til hamingju að vera búin í prófum :D

Kristín og voffarnir

Helga said...

Takk :D
Get ekki beðið eftir að hitta ykkur báðar!!! Sumarbústaðaferð og voffagöngur....þetta verður bara draumur :D

Anonymous said...

Mikil tilhlökkun hér að hitta þig!!!!!
Vonandi má hundalaust fólk koma með í göngu C:
-Kata